Ferðin til S-Ameríku var frábær. Mikil upplifun þar. Ég freistast til þess að geyma bloggið um þá ferð í enn aðra færslu því það er talsverð vinna sem fer í að skrifa um 2ja mánaða ævintýri þar sem við ferðuðumst vítt og breitt um heila heimsálfu.
Í lok hvers árs hef ég ríka þörf til þess að gera árið upp. Það ætla ég hins vegar að geyma fyrir enn aðra færslu. Ég stend nú á enn einum tímamótunum í mínu lífi, bæði í einkalífinu sem og atvinnulífinu. Ég hef eytt síðustu dögum í að hitta mögulega atvinnuveitendur. Mig langar til þess að færa mig um set. Ég hef viðað að mér mikilli reynslu tengdum tölvum og ég finn að það nýtist mér vel en mig vantar meiri reynslu í viðskiptum/fjármálum. Mér finnst því líklegt að næsti vinnustaður verði í öðrum geira en ég hef hingað til starfað í.
Gleðilegt nýtt ár!